PDF · 2021
Aukið aðhald = Aukið umferðarör­yggi, fyrri útgáfa 2001

Árið 2001 var verkefnið “Aukið aðhald = Aukið umferðaröryggi” styrkt af RANNUM og unnið af ND á Íslandi ehf. Það verkefni var byggt á ökuritanum SAGA og því aðhaldi sem hann hefur uppá að bjóða. Verkefnið átti að spanna tvö ár og árangur aukins aðhalds að vera mældur að þeim tíma loknum. Það verkefni tók hinsvegar nokkrum breytingum í tímans rás með breyttum áherslum fyrirtækjanna sem tóku þátt í því verkefni. Nú í dag eru um 40 fyrirtæki sem tekið hafa SAGA ökuritann í sína þjónustu. Þar af leiðandi er komin sterkur grunnur til að rannsaka til hlítar hve þungt aukið aðhald vigtar á vogaskálar umferðaröryggis. En niðurstöður þeirra sem hafa verið ötulir í notkun ökuritans sem verkfæris til aukningar á aðhaldi munu vera dregnar fram í þessari skýrslu ásamt reynslu þeirra og viðhorfi. Upplýsingarnar sem koma frá fyrirtækjum eru ýmist eftir viðtöl (sem ýmist eru fyrir þetta verkefni eða önnur sem fara inná sama svið) eða úr niðurstöðum eldri verkefna. Farið var í hvern lið fyrir sig og gerð greinagóð skil á þeim niðurstöðum.

Ábyrgðarmaður

New Development

Skrá

aukid-adhald-aukid-umferdaroryggi.-agrip-2004.pdf

Sækja skrá