Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Vestfjarðavegar í Þorskafirði á um 10,4 km kafla og um 0,2 km
kafla á Djúpadalsvegi.
Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 16. febrúar 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. mars 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Bergskering í vegstæði | 262.000 m3 |
Fyllingar úr skeringum | 208.100 m3 |
Fláafleygar úr skeringum | 56.200 m3 |
Grjótvörn | 21.000 m3 |
Ræsalögn | 966 m |
Styrktarlag, efnisvinnsla | 46.600 m3 |
Styrktarlag, útlögn | 43.200 m3 |
Burðarlag, efnisvinnsla | 14.700 m3 |
Burðarlag, útlögn | 18.300 m3 |
Klæðing | 78.800 m2 |
Vegrið | 2.840 m |
Opnun tilboða 22. mars 2022. Nýbygging Vestfjarðavegar í Þorskafirði á um 10,4 km kafla og um 0,2 km kafla á Djúpadalsvegi.
Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2023.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík | 1.755.189.396 | 122,7 | 520.064.250 |
Suðurverk hf., Kópavogur | 1.478.970.000 | 103,4 | 243.844.854 |
Áætlaður verktakakostnaður | 1.430.986.434 | 100,0 | 195.861.288 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 1.235.125.146 | 86,3 | 0 |
Norðurtak og Skútaberg ehf., Akureyri | 1.243.150.500 | 86,9 | 8.025.354 |