PDF · Útgáfa 2970-200-SKY-001-V01 — júní 2017
Uppruni svifryks í Reykja­vík

Frá miðjum mars og fram í byrjun maí 2015 voru tekin svifrykssýni við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar til að meta samsetningu svifryksins. Svifrykssýnum (grófu svifryki PM10) var safnað á kvarssíur með sérstökum svifrykssafnara. Ryksýnin voru síðan efnagreind með plasma-massagreini og fjölbreytulíkan var útbúið til að rekja uppruna svifrykssins. Til að fá viðmiðunargildi var safnað ryki af ætluðum uppsprettum á sams konar síur og með sama ryksafnara þannig að uppsprettusýnin og raunverulegu ryksýnin fengu sömu meðhöndlun. Eftirfarandi niðurstöður fengust: Malbik 48.8%, sót 31,2%, jarðvegur 7,7%, bremsur 1,6% og salt 3,9%. Stór hluti eða yfir 80% af svifrykinu stafar af bílaumferð þar sem stærsti hlutinn kemur frá malbiki. Í samanburði við mælingar sem gerðar voru árin 2003 og 2013 sést að eldfjallaaska er ekki lengur til staðar sem hafði mælst í töluverðu magni 2013. Hlutfall jarðvegs fer minnkandi sem helst í hendur við lítil umsvif byggingarframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu á þessum tíma. Einnig er áberandi hátt hlutfall sóts sem mældis svipað og árið 2013 en mun lægra árið 2003. Niðurstöðurnar styðja eindregið þann grun að vægi sóts í svifryki hafi vaxið mjög á síðustu árum sem má sennilega rekja til mikillar aukningar í bílaumferð og hækkandi hlutfalls díselbíla.

Uppruni svifryks í Reykjavík
Höfundur

Páll Höskuldsson - Efla og Arngrímur Thorlacius - Efnagreiningar ehf

Skrá

uppruni-svifryks-i-reykjavik.pdf

Sækja skrá