PDF · Útgáfa HNIT-2014/01 — september 2014
Umhverf­isvæn­ir vegir

Umhverfisvænir vegir (The Greenroads® Rating System) er bandarískt kerfi þar sem mat er lagt á hversu umhverfisvænir vegir og tengd mannvirki (t.d. brýr og göngustígar) eru ásamt því sem lögð er áhersla á umhverfisvænar og sjálfbærar lausnir í hönnun og framkvæmd. Þetta kerfi er sambærilegt og LEED (Leadership in Energy and Environmental Design) kerfið sem tileinkað er byggingum.

Tilgangur þessa verkefnis er að kynna Greenroads matskerfið og hvernig það er notað í Bandaríkjunum. Einnig er skoðað hvernig kerfið er notað í löndum utan Bandaríkjanna og hvort aðlögun sé gerð fyrir tiltekið land. Markmið verkefnisins er að kanna hvort það sé fýsilegur kostur að nota þetta kerfi fyrir verkefni Vegagerðarinnar í framtíðinni.

Umhverfisvænir vegir
Verkefnastjóri

Hermann Hermannsson

Skrá

umhverfisvaenir_vegir.pdf

Sækja skrá