PDF · maí 2018
Sann­próf­un mótvægisað­gerða vegna vega­fram­kvæmda: Skilar endur­heimt votlend­is tilætl­uðum árangri?

Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum (MÁU) nr. 106/2000 er framkvæmdaaðila skylt að kynna fyrir almenningi umhverfisáhrif þeirra framkvæmda sem falla undir lögin og mótvægisaðgerðir vegna þeirra. Síðan lögin tóku gildi hefur Vegagerðin unnið að endurheimt votlendis víðs vegar um land til að bæta fyrir tap og röskun á votlendi vegna vegaframkvæmda. Þar sem nú er allnokkuð liðið síðan fyrstu svæðin voru endurheimt er orðið tímabært að kanna hver árangur þessara aðgerða hefur verið. Markmið þessarar rannsóknar var tvíþættur, 1) að meta árangur á fimm votlendissvæðum sem Vegagerðin endurheimti á árunum 2003-2014 og 2) að greina matsskýrslur í tengslum við þær framkvæmdir sem mótvægisaðgerðir voru unnar fyrir. Rannsóknarsvæðin eru staðsett í ólíkum landshlutum og mislangt er síðan þau voru endurheimt. Árangursmatið fól meðal annars í sér gróðurúttekt, mælingu á jarðvatnsstöðu, mat á gróðurhulu skurðsára og athugun á skurðfyllingum og stíflum. Matsskýrslur voru greindar með hliðsjón af umfjöllun um votlendi og þá sérstaklega hvort þær tóku til endurheimtar. Eins var litið til umsagna Umhverfisstofnunar og úrskurð/álit Skipulagsstofnunar og þá hvort skilyrði um endurheimt væri sett fyrir framkvæmdum. Á heildina litið er endurheimt árangursrík á flestöllum rannsóknarsvæðunum, votlendisgróður er víða ríkjandi og landið í mörgum tilvikum talsvert blautt. Í Reykhólasveit, Bjarnarfirði, Framengjum og Fannardal hafði gróður ekki náð að loka skurðsárum, en best var ástandið á Steinsstöðum. Í Fannardal var áberandi að endurheimtarframkvæmdir voru ekki að öllu leyti fullnægjandi sem skilaði sér í misjöfnum árangri þar. Þá sýna niðurstöður að skýrt verklag við framkvæmd endurheimtar er mikilvægt og þörf er á einhverjum inngripum til að koma gróðri af stað í skurðsárum. Niðurstöður greininga á matsskýrslum leiddu í ljós að jákvæð þróun hafi orðið með tilliti til umfjöllunar um votlendi og endurheimt votlendis í matsskýrslum. Þá gefa niðurstöður til kynna að skýra þurfi betur hlutverk ólíkra aðila og auka hvata þegar kemur að eftirfylgni mótvægisaðgerða. Þessi rannsókn getur nýst til að bæta enn frekar MÁU ferlið og reglugerðir í tengslum við mótvægisaðgerðir til þess að auka skilvirkni þeirra í framtíðinni.

Sannprófun mótvægisaðgerða vegna vegaframkvæmda
Höfundur

Þórdís Björt Sigþórsdóttir - HÍ

Skrá

sannprofun-motvaegisadgerda-vegna-vegaframkvaemda-mat-a-arangri-endurheimtar-votlendis.pdf

Sækja skrá