PDF · Útgáfa RH-06-2016 — júní 2016
Könn­un á legu útfalla farvega fall­vatna Síðu­jökuls

Vel þekkt er að vatnsföll sem spretta undan jökli geta fluttst til þegar jökull hörfar, bæði getur landslag sem undan jökli kemur beint vatni annað en einnig getur breyting ísfargs breytt rennslisleiðum undir jökli og þá einnig útfall við jökuljaðar fluttst til. Vegagerðin hefur byggt brýr á þjóðvegum yfir vatnsföll (Hverfisfljót, Brunná og Djúpá) sem eiga uppruna í Síðujökli. Það getur valdið verulegum vandræðum ef stór vatnsföll flytjast til, fara í nýjan farveg eða sameinast öðrum. Þetta getur bæði orðið til þess að brýr standi yfir þurrum farvegi, eða verði skyndilega of litlar fyrir mjög aukið vatnsmagn.

Könnun á legu útfalla farvega fallvatna Síðujökuls
Höfundur

Finnur Pálsson, Eyjólfur Magnússon og Helgi Björnsson - Jarðvísindastofnun

Skrá

konnun-a-legu-utfalla-og-farvega-fallvatna-sidujokuls2016.pdf

Sækja skrá