Eftirfarandi skýrsla er afrakstur rannsóknar VSÓ Ráðgjafar sem nefnist Samband slysatíðni og umferðarmagns – Slys á gatnamótum og var styrkt af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. Árið 2018 gerði VSÓ Ráðgjöf skýrsluna Slys á gatnamótum. Samband slysatíðni, alvarleika slysa og umferðarhraða sem einnig var styrkt af Rannsóknasjóðnum. Þar var líkt og nafnið gefur til kynna skoðað hvaða áhrif umferðarhraði, hefur á bæði fjölda og alvarleika slysa á sex gatnamótum í Reykjavík. Í þessu verkefni verður hluti verkefnis frá 2018 endurvakinn. Verður hér áætluð slysatíðni sömu sex gatnamóta, og slys undanfarinna 5 ára borin saman við þau úr fyrri rannsókn.
Ragnar Þór Þrastarson