Verkefni þetta er tilkomið vegna hugmynda um uppbyggingu samgöngunets hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu og nýfenginnar heimildar Vegagerðarinnar
til að veita fé til hjólreiðastíga. Líklegast er að hjólreiðar nýtist til samgangna í þéttbýli og því er lögð áhersla á áætlanagerð er myndi nýtast samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins. Nýfengin heimild Vegagerðarinnar í Vegalögum kveður á um uppbyggingu samkvæmt sérstakri áætlun. Það er nauðsynlegt að líta til þess hvers kyns aðferðarfræði skuli beita við mótun slíkrar áætlunar.
Verkefnið hefur það að markmiði að leita fyrirmynda að því hvernig sé staðið að skilgreiningu samgöngukerfis hjólreiða í öðrum löndum og meða hvaða
hætti áætlanagerð er unnin.
- Farið hefur verið yfir skýrslur, stefnuskjöl, leiðbeiningar og rannsóknir um hjólreiðar sem samgöngutæki. Fanga hefur verið leitað á norðurlöndum og í
- hinum enskumælandi heimi. Tvenns konar skjöl hafa verið til skoðunar sérstaklega:
- Stefnumótun systurstofnana Vegagerðarinnar sem aðallega fjalla um kerfið sjálft og öryggismál.
- Áætlanir um hjólreiðar í borgum sem auk umfjöllunar um kerfið sjálft fjalla um notendur og væntanlega notendur kerfanna.
Auk þess voru ýmsar skýrslur sjálfstæðra rannsóknarstofnana og félagasamtaka rýndar.
Sverrir Bollason, VSÓ