Árið 2007 voru tvær hraðamyndavélar teknar í notkun á Hringvegi í Hvalfjarðarsveit. Önnur hraðamyndavélin var sett upp í grennd við vegamót að Hagamel, og tekur hún myndir af þeim ökumönnum sem aka of hratt til norðurs. Hin hraðamyndavélin var sett upp á móts við Fiskilæk og tekur hún myndir af ökumönnum sem aka of hratt til suðurs. Rannsóknarverkefnið, sem gerð er grein fyrir í þessari skýrslu, fólst í athugun á hugsanlegum áhrifum hraðamyndavéla á Hringvegi í Hvalfjarðarsveit á öryggi vegfarenda á um 9 km kafla.
Umferðardeild
Jón Hjaltason, Katrín Halldórsdóttir
Jón Hjaltason