Markmið þessara vinnuleiðbeininga er að setja fram nokkur einföld tól sem nýtast veghönnuðum þegar lögð eru drög vega í eða við fjalllendi, þar sem gera má ráð fyrir að
snjóflóð geti náð niður á veg. Leiðbeiningarnar eru þannig upp settar að leikmenn geti með einföldum hætti metið hvort nauðsynlegt reynist eða ekki að kalla til sérfræðing á
sviði snjóflóða.
Þessum leiðbeiningum er ekki ætlað að aðstoða við verkhönnun vega um svæði sem talin eru snjóflóðasvæði; í þeim tilfellum eru hönnuðir hvattir til þess að leita til þeirra er sérþekkingu hafa á snjóflóðum og veghönnun.
Árni Jónsson, Orion