PDF · mars 2016
Skrán­ing vegminja

Vegminjaskráin sem hér er tekin saman samanstendur af átján stöðum á Suðaustur- og Austurlandi. Vegminjarnar dreifast nokkuð jafnt yfir svæðið frá Vík í Mýrdal í vestri og að Reyðarfirði í austri. Hálendisvegir á þessum fjórðungi landsins eru einnig teknir til skoðunar. Vegminjarnar sem fjallað er um hér eru af 7 fjórum gerðum: Þjóðleiðir, minjavegir, minjabrýr og vitar. Skráð er lýsing á einstökum mannvirkjum, stærð mannvirkis, ef það á við, farið er yfir sögu þess og verndargildi metið. Valdar vegminjar eiga að vera einkennandi fyrir sögu vegagerðar frá upphafi og eiga að gefa góða mynd af sögu vegagerðar. Forsenda þess að hægt sé að vernda mannvirki er að þau séu áfram í notkun þó nýrri mannvirki hafi tekið við upphaflegu hlutverki þeirra. Gamlar brýr og vegi má nýta áfram sem reið- og gönguleiðir, eins og oft hefur verið gert. Erfitt er að varðveita gamla vegi ef þeir eru ekki lengur í notkun þar sem vatn og vindar eyða þeim fljótt, sömu sögu má segja um gamlar brýr. Því verður áhersla lögð á að skrá þá vegkafla, vita, brýr og þjóðleiðir sem eru á einhvern hátt enn í notkun og mögulegt er að halda við.

Skráning vegminja
Höfundur

Arna Björk Stefánsdóttir

Skrá

vegminjar2015-16-utg.2.pdf

Sækja skrá
Breytingar frá fyrri útgáfu

áfangaskýrsla vegna vinnu 2015