PDF · Útgáfa 1800-690 — mars 2019
Sjálf­bærni­mat íslenskra vega­fram­kvæmda (áfanga­skýrsla)

Vegakerfi landsins er stór hluti hins manngerða umhverfis á Íslandi og það er á ábyrgð Vegagerðarinnar að þróa og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem
hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins að leiðarljósi. Í þeim tilgangi þarf að skoða hvernig hægt er að hámarka líftíma mannvirkja um leið og neikvæðum umhverfisáhrifum er haldið í lágmarki og að framkvæmt sé með hag samfélagsins að leiðarljósi. Núverandi mat á framkvæmdum byggir á mati á umhverfisáhrifum þar sem takmarkað er litið til samfélagsáhrifa eða heildar ábata verka.

Til að tryggja sjálfbærni mannvirkjagerðarinnar þarf að huga að öllum þrem stoðum sjálfbærrar þróunar, þ.e. umhverfi, efnahag og samfélagi. Til er fjöldi alþjóðlegra matskerfa sem hafa það að markmiði að auka sjálfbærni innviða en engin framkvæmd hérlendis hefur farið í gegnum samanburð við slíkt matskerfi eða vottun. Til að skoða mögulegt kerfi til að leggja mat á sjálfbærni íslenskra innviða er gerð tilviksrannsókn á breikkun Suðurlandsvegar þar sem hönnun og framkvæmd er borin saman við innviðamatskerfi BREEAM. Skoðuð eru fyrirliggjandi gögn og áætluð bæði raun frammistaða verkefnisins og möguleg frammistaða miðað við litla fyrirhöfn eða breytingar á verklagi. Í þessari áfangaskýrslu er lagt mat á frammistöðu á stefnumótunar og hönnunarstigi verks.

Við mat á raun frammistöðu verkefnis nær það aðeins 4% þeirra stiga sem eru í boði. Helsta ástæða þess að stig nást ekki er takmörkuð skrásetning upplýsinga. Í mörgum tilfellum hefur verið hugað að atriðum og þau jafnvel tekin til greina en ekkert hefur verið skráð eða gerð formleg greining á viðfangsefni, því fást ekki stig samkvæmt aðferðarfærði BREEAM. Þau stig sem að náðust snúa að mestu leyti að mati á umhverfisáhrifum og þeim upplýsingum sem nú þegar koma fram þar.

Þegar lagt er mat á hvaða stig hefðu getað fengist með lítilli fyrirhöfn er horft til þátta þar sem vantar upp á skrásetningu en atriði voru tekin til íhugunar auk greininga sem að einhverju leyti uppfylla kröfur BREEAM en ekki að öllu leyti. Þau stig reyndust vera 46% þeirra stig sem í boði sem gerir það að verkum að heildarniðurstaða verkefnis er 50% sem skilar því „Good“ einkunn samkvæmt matskerfinu.

Sjálfbærnimat íslenskra vegaframkvæmda (áfangaskýrsla)
Höfundur

Sandra Rán Ásgrímsdóttir - Mannvit

Skrá

sjalfbaernimat-islenskra-vegaframkvaemda.pdf

Sækja skrá