PDF · desember 2014
Fagur­fræði og list í samgöng­um

Í þessari skýrslu er leitast við að skoða hugtakið fagurfræði og skilgreiningar á því. Hugtakið er skilgreint nánar út frá tengslum við fagurfræði brúa og vegamannvirkja og er fjallað nánar um þessi hugtök út frá nýrri heimildum, m.a. frá Noregi og Bandaríkjunum. Bent er á vöntun þess að fagurfræði sé nýtt í hönnunarverkefnum og rakið hvers vegna svo hafi orðið. Rakin er þróun og forsaga ímyndar um fagurfræði í skipulagi og tengsl fagurfræði við veglínur og hvernig þær fara í landslaginu. Rakið er nánar hvað þarf til að vegamannvirki nái frekar að mæta nútíma kröfum um fagurfræði. Þá er fjallað um brýr og hvernig ökumenn skynja þær í akstri á vegum. Bent er á gildi brúarhönnunar fyrir ánægju- og öryggistilfinningu ökumanna. Þá er fjallað um helstu fagurfræðilega eiginleika við brúarhönnun, m.a. út frá bandarískum heimildum. Bent er á framgöngu Finna í því sambandi að meta fagurfræði að verðleikum og gera kröfu um sérstakt kostnaðarframlag í fagurfræði við hönnun brúa. Nokkur vega- og brúarmannvirki á Íslandi eru metin m.t.t. fagurfræðilegra eiginleika og tekið mið af fræðum um þetta efni. Að lokum var gerð örstutt skoðanakönnun um fegurð 16 innbyrðis ólíkra brúarmannvirka.

Fagurfræði og list í samgöngum
Höfundur

Haraldur Sigþórsson, Stefán Einarsson

Skrá

fagurfraedi-og-list-i-samgongum.pdf

Sækja skrá