Markmiðið með þessari samantekt er að bera saman eiginleika metýl esters og etýl esters í þjálbik með því að rýna rannsóknarniðurstöður Colas Ísland og bera saman við fyrri rannsóknir Vegaerðarinnar á efninu. Skoðað verður hvort hægt sé að taka upp notkun metýlester í meira mæli þegar færi gefst. Mikilvægt er að þekkja eiginleika mismunandi mýkingarefna í þjálbik svo hægt sé að nýta vörur sem verða til innan hringrásarhagkerfis á Íslandi og minnka þannig þungaflutning á milli landa.
Sigurrós Arnardóttir og Björk Úlfarsdóttir