PDF · maí 2009
Hljóð­stig frá slit­blöð­um á snjótönn­um – Mælingar og saman­burður

Að beiðni Vegagerðarinnar voru framkvæmdar hljóðstigsmælingar frá nokkrum mismunandi gerðum slitblaða fyrir snjótennur. Tilgangur mælinganna var að meta muninn á hljóðgjöf og hávaðaútbreiðslu blaðanna. Snjóhreinsun á vegum Vegagerðarinnar fer meðal annars fram á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu en á síðustu misserum hefur borið á kvörtunum frá íbúum sem búa í nágrenni við stofnbrautir.

Vegagerðin hefur fram til þessa eingöngu notast við stálblöð en eru nú að skoða og bera saman aðra valkosti sem í boði eru. Hljóðgjöf og hávaðaútbreiðsla blaðanna er einn þeirra þátta sem eru í skoðun hjá Vegagerðinni og er það tilgangur þessa verkefnis. Að auki er fallað um reglugerðarviðmið hér heima og í nágrannalöndum, hljóðskynjun, hávaðaáraun, ónæði ökumanna og áhrif titrings á heilsu þeirra.

Hljóðstig frá slitblöðum á snjótönnum
Höfundur

Guðrún Jónsdóttir og Gígja Gunnlaugsdóttir - Efla

Skrá

hljodstig-fra-slitblodum-a-snjotonnum.pdf

Sækja skrá