PDF · Útgáfa 07-02 — febrúar 2007
Tilraun með klæð­ingars­litlög – Tilraunakaflar á Vest­fjörð­um 2006 – áfanga­skýrsla 4

Í ársbyrjun 2003 hófst 6 ára tilraunaverkefni, þar sem á fyrsta ári voru lagðir út tilraunakaflar með klæðingu úr völdum efnum af Vestfjörðum, 11 kaflar í Tungudal og
9 í Önundarfirði. Aðalmarkmið verkefnisins er að bera saman efni úr þeim berg- og malarnámum sem verið er að nota, til að sjá hvaða efni á að leggja áherslu á að nota sem mest. Jafnframt að nota þá reynslu til að velja nýja vinnslustaði.

Úttekt á ástandi kaflanna fór fram í júní í ár. Gerð var tilraun til að meta og gæðaflokka tilraunakaflana nú eins og áður, en þar sem skemmdir eru yfirleitt litlar enn sem komið er, þarf að taka þeim niðurstöðum með fyrirvara eins og áður. Engu að síður getur verið fróðlegt að bera saman gæðaflokkun nú og á seinni tímum, þegar afgerandi skemmdir eru komnar fram í sumum kaflanna.

Lagðir voru nýir tilraunakaflar á veginn milli Ísafjarðar og Hnífsdals um haustið 2005, alls 6 kaflar. Ástand kaflanna var skoðað í sumar, en í ljós kom að sumir þeirra höfðu
farið illa á fyrsta vetri.

Tilraun með klæðingarslitlög - Tilraunakaflar á Vestfjörðum 2006 - áfangaskýrsla 4
Höfundur

Pétur Pétursson - Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins

Skrá

tilraunakaflar-a-vestfjordum-afangaskyrsla-4.pdf

Sækja skrá