PDF · Útgáfa JHa-SV-SvP-2006/001 — október 2006
Niður­stöður korna­stærðar­dreif­inga og berg­flokk­unar sýna af Skeið­arár- og Breiða­merk­ursandi

Þrjú sýni af Skeiðarár- og Breiðamerkursandi voru kornastærðargreind og bergflokkuð á Vatnamælingum Orkustofnunar og niðurstöðurnar bornar saman við niðurstöður
samskonar greiningar eldri sýna frá svæðinu.. Meginmarkmið rannsóknanna var að meta hvort hægt væri að útskýra minna strandrof við Jökulsá á Breiðamerkursandi síðastliðin ár með auknum efnisflutningum austur fyrir Ingólfshöfða í kjölfar hamfarahlaupsins á Skeiðarársandi árið 1996. Niðurstöður benda til að sandur austan við Jökulsá sé að öllum líkindum að hluta til kominn frá Skeiðarársandi, en þar gefa kornastærðargreiningar afdráttarlausari niðurstöður en bergflokkunin. Samanburður við eldri sýni er þó erfiður vegna mismunandi kornastærðar nýrri og eldri bergflokkunarsýna og þar sem engin sýni voru tekin úr hlaupinu 1996 sem hægt er að bera saman við.

Niðurstöður kornastærðardreifinga og bergflokkunar sýna af Skeiðarár- og Breiðamerkursandi
Höfundur

Jórunn Harðardóttir Skúli Víkingsson og Svanur Pálsson - Orkustofnun

Skrá

kornadrbergfl_skeidarbreidams.pdf

Sækja skrá