PDF · Útgáfa 05-xx — desember 2005
Tilraun með klæðn­ingars­litlög – Tilraunakaflar á Vest­fjörð­um – áfanga­skýrsla 3

Í ársbyrjun 2003 hófst 6 ára tilraunaverkefni, þar sem á fyrsta ári voru lagðir út tilraunakaflar með klæðingu úr völdum efnum af Vestfjörðum, 11 kaflar í Tungudal og 9
í Önundarfirði. Aðalmarkmið verkefnisins er að bera saman efni úr þeim berg- og malarnámum sem verið er að nota, til að sjá hvaða efni á að leggja áherslu á að nota sem
mest. Jafnframt að nota þá reynslu til að velja nýja vinnslustaði.

Úttekt á ástandi kaflanna fór fram í júní í ár. Gerð var tilraun til að meta og gæðaflokka tilraunakaflana nú eins og á síðasta ári, en þar sem skemmdir eru yfirleitt litlar enn sem komið er, þarf að taka þær niðurstöður með fyrirvara eins og áður. Engu að síður getur verið fróðlegt að bera saman gæðaflokkun nú og á seinni tímum, þegar afgerandi skemmdir eru komnar fram í sumum kaflanna.

Lagðir voru nýir tilraunakaflar á veginum milli Ísafjarðar og Hnífsdals, alls 6 kaflar. Ýmsar prófanir voru gerðar á efnunum sem lögð voru út og eru niðurstöður þeirra birtar
í skýrslunni.

Tilraun með klæðningarslitlög - Tilraunakaflar á Vestfjörðum - áfangaskýrsla 3
Höfundur

Pétur Pétursson - Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins

Skrá

skyrsla-tilraun-a-vestfjordum-2005.pdf

Sækja skrá