Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Suðursvæði 2024.
Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar með þjálbiki | 258.000 m2 |
Yfirsprautun á klæðingu | 5.000 m2 |
Hjólfarafylling með einföldu lagi klæðingar | 5.000 m2 |
Flutningur steinefna | 3.870 m3 |
Flutningur bindiefna | 465 m3 |
Verki skal að fullu lokið 1. september 2024
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 28. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. mars 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 192.268.000 | 101,1 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 190.190.000 | 100,0 | 2.078.000 |