Útboðsnúmer 24-006
Vetrar­þjón­usta 2024-2027, Vest­ur-Barða­strandar­sýsla

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2024
    • 2Opnun tilboða mars 2024
    • 3Samningum lokið

18 febrúar 2024Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, í Vestur-Barðastrandarsýslu. Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frátöku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, eitt ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 30.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2027.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með sunnudeginum 18. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. mars 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.


19 mars 2024Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Allt í járnum
245.760.000
142,1
64.560.000
Lás ehf
181.200.000
104,8
0
Áætlaður verktakakostnaður
172.913.109
100,0
8.286.891