Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, í höfuðborginni.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frátöku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, eitt ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 50.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2027.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 2. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. mars 2024
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Opnun tilboða 5. mars 2024. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, í höfuðborginni.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frátöku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, eitt ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 50.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2027.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Áætlaður verktakakostnaður | 413.880.000 | 100,0 | 85.016.364 |
Malbikunarstöðin Höfði ehf., Hafnarfirði | 416.940.000 | 100,7 | 88.076.364 |
Óskatak ehf., Kópavogi | 401.100.000 | 96,9 | 72.236.364 |
Bjartey ehf., Reykjavík | 328.863.636 | 79,5 | 0 |