Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Höfn – Öræfi.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 15.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 8. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. apríl 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Opnun tilboða 4. apríl 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Höfn – Öræfi.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 15.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2026.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Rósaberg ehf., Hornafirði | 89.953.000 | 118,5 | 27.703.000 |
Áætlaður verktakakostnaður | 75.900.000 | 100,0 | 13.650.000 |
Jökulfell ehf., Svínafelli | 62.250.000 | 82,0 | 0 |