Útboðsnúmer 22-128
Vetrar­þjón­usta 2023-2026, Breið­dals­vík – Djúpi­vogur

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2023
    • 2Opnun tilboða apríl 2023
    • 3Samningum lokið ágúst 2023

8. febrúar 2023Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Breiðdalsvík – Djúpivogur.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 10.500 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 8. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. apríl 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.


4. apríl 2023Opnun tilboða

Opnun tilboða 4. apríl 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Breiðdalsvík – Djúpivogur.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 10.500 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
SG Vélar ehf., Djúpavogi
56.250.000
101,5
0
Áætlaður verktakakostnaður
55.418.250
100,0
831.750

25. ágúst 2023Samningum lokið

SG Vélar ehf., Djúpavogi
kt. 4110922599