Vegagerðin býður hér með út smíði tveggja steinsteyptra eftirspenntra 34 m plötubrúa yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá, ásamt vegagerð við hvora brú fyrir sig, samtals um 1,8 km. Brýrnar eru beggja vegna við Klettsháls.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. desember 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 4. desember 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. desember 2023.
Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Heildar magntölur fyrir vegagerðina: | |
Bergskering 27.700 m3 | 27.700 m3 |
Fyllingar | 49.900 m3 |
Útjöfnun gamals vegar | 14.000 m2 |
Fláafleygar | 15.700 m3 |
Ræsalögn | 186 m |
Styrktarlag flutningur og útlögn | 10.000 m3 |
Burðarlag flutningur og útlögn | 3.700 m3 |
Klæðing | 33.960 m2 |
Vegrið | 480 m |
Heildar magntölur fyrir brúargerðina á báðar brýr: | |
Vegrið | 188 m |
Gröftur | 1.600 m3 |
Stálstaurar, skurður | 120 stk |
Mótafletir | 2.132 m2 |
Steypustyrktarjárn | 100 tonn |
Spennt járnalögn | 21 tonn |
Steypa | 1.180 m3 |
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík | 1.155.738.082 | 139,6 | 365.163.992 |
Eykt ehf., Reykjavík | 1.069.799.040 | 129,2 | 279.224.950 |
Va Verktakar, Reykjavík | 987.026.617 | 119,2 | 196.452.527 |
Húsheild ehf, Mývatn | 979.887.039 | 118,4 | 189.312.949 |
Þotan ehf., Bolungarvík | 862.080.475 | 104,1 | 71.506.385 |
Áætlaður verktakakostnaður | 827.956.296 | 100,0 | 37.382.206 |
VBF Mjölnir ehf., Selfossi | 790.574.090 | 95,5 | 0 |