Útboðsnúmer 24-072
Sements­fest­un og styrk­ing á Vestur­svæði 2024

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst maí 2024
    • 2Opnun tilboða júní 2024
    • 3Samningum lokið

31 maí 2024Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út þurrfræsingu, festun burðarlags með sementi, útlögn burðarlagsefnis og tvöfalda klæðingu á vegum á Vestursvæði 2024.

Áætlaðar magntölur:
Festun með sementi 
35.629 m2
Tvöföld klæðing 
97.283 m2
Efra burðarlag afrétting   
64.487 m2

Verklok eru 1. september 2024.

Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 31. maí 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. júní 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign


11 júní 2024Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Áætlaður verktakakostnaður
218.656.974
100,0
1.400.829
Borgarverk ehf., Borgarnesi
217.256.145
99,4
0