Útboðsnúmer 23-058
Sauð­árkrók­ur, endur­bygg­ing Efri garðs 2023

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst júní 2023
    • 2Opnun tilboða júní 2023
    • 3Samningum lokið

12 júní 2023Útboðsauglýsing

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Sauðárkrókur, endurbygging Efri garðs 2023.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2024.

Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign frá og með mánudeginum  12. júní  2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. júní 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign

Helstu magntölur
Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.
Grafa fyrir akkerisstögum og ganga frá stagbita og stögum.
Jarðvinna, fylling og þjöppun.
Reka niður 67 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ20-700 og ganga frá stagbitum og stögum.
Koma fyrir 59 bakþilsplötum ásamt stagbita við bakþil.
Steypa um 89 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

27 júní 2023Opnun tilboða

Opnun tilboða 27. júní 2023. Sveitarfélagið Skagafjörður óskaði eftir tilboðum í verkið Sauðárkrókur, endurbygging Efri garðs 2023.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2024.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Hagtak hf., Hafnarfirði
158.525.000
118,1
16.518.080
Árni Helgason ehf., Ólafsfirði
142.006.920
105,8
0
Áætlaður verktakakostnaður
134.238.250
100,0
7.768.670