Útboðsnúmer 24-019
Reyk­hóla­hreppur – Karlsey, þekja og lagn­ir 2024

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2024
    • 2Opnun tilboða apríl 2024
    • 3Samningum lokið apríl 2024

5 febrúar 2024Útboðsauglýsing

Hafnarstjórn Reykhólahrepps óskar eftir tilboðum í verkið „Reykhólahreppur – Karlsey, þekja og lagnir 2024“.  Helstu verkþættir og magntölur eru:

·         Steypa upp 1 stk. rafbúnaðarhús og 3 stk. stöpla undir ljósamöstur

·         Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn og koma fyrir rafmagnskápum

·         Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum

·         Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu

·         Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 1.370 m²

Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. nóvember 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign frá og með þriðjudeginum 6. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. febrúar 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign


20 apríl 2024Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Alm. Umhverfisþjónustan Grundafirði
116.600.500
143,5
20.343.900
Geirnaglinn ehf., Ísafirði
96.256.600
118,4
0
Áætlaður verktakakostnaður
81.276.000
100,0
14.980.600

3 apríl 2024Samningum lokið

Geirnaglinn ehf.,Ísafirði
kt. 6701060120