Vegagerðin, fyrir hönd Hafnarsjóðs Norðurþings, býður hér með út innkaup á notuðum dráttarbát fyrir Hafnarsjóð Norðurþings.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 4. febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 10:00 fimmtudaginn 6. mars 2025.
Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.