Útboðsnúmer 23-051
Hval­fjarðar­göng, rekstur og þjón­usta 2023-2025

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst maí 2023
    • 2Opnun tilboða júní 2023
    • 3Samningum lokið

22 maí 2023Útboðsauglýsing

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í rekstur og þjónustu í Hvalfjarðargöngum árin 2023-2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign   frá og með mánudeginum 22. maí 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. júní 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.

Í aðalatriðum felst verkið í eftirfarandi
Útkallsþjónustu, þ.e. að bregðast við útköllum vegna bilana eða atvika sem verða í göngunum og bregðast þarf strax við. 
Umferðarstjórnun þegar göngunum er lokað eða umferð takmörkuð í gegnum þau, t.d. vegna úttekta og/eða viðhalds.
Þátttöku og aðstoð vegna funda og æfinga viðbragðsaðila. 
Reglubundnu eftirliti og ástandsgreiningum.
Viðhaldsvinnu á búnaði. 

20 júní 2023Opnun tilboða

Opnun tilboða 20. júní 2023. Vegagerðin óskar eftir tilboðum í rekstur og þjónustu í Hvalfjarðargöngum árin 2023-2025.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Colas Ísland ehf., Hafnarfirði
392.287.508
148,3
101.223.208
Árvirkinn ehf., Árborg
391.102.200
147,8
100.037.900
Rafal ehf., Hafnarfirði
311.360.704
117,7
20.296.404
Meitill- GT tækni ehf., Grundartanga
291.064.300
110,0
0
Áætlaður verktakakostnaður
264.533.600
100,0
26.530.700