Vegagerðin býður hér með út gerð sjóvarna í sveitarfélögunum Húnabyggð, Skagaströnd og
Skagabyggð, á alls fimm köflum í sveitarfélögunum. Heildarlengd sjóvarnar er um 900 m.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2024.
Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 6. september 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. september 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Helstu magntölur | |
Útlögn grjóts og sprengds kjarna um | 9.000 m3 |
Vinnsla efnis á lager | um 4.500 m3 |
Opnun tilboða 19. september 2023. Gerð sjóvarna í sveitarfélögunum Húnabyggð, Skagaströnd og Skagabyggð, á alls fimm köflum í sveitarfélögunum. Heildarlengd sjóvarnar er um 900 m.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2024.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Víðimelsbræður ehf., Varmahlíð | 100.107.250 | 105,2 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 95.140.100 | 100,0 | 4.967.150 |