Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu í námunni Fossamelar 2. Um er að ræða sprengt berg í efnishaug til vinnslu flokkaðs klæðingarefnis og hálkuvarnarsands.
Helstu magntölur:
– Klæðingarefni 11/14 1.400 m3
– Klæðingarefni 8/11 1.300 m3
– Klæðingarefni 4/8 900 m3
– Hálkuvarnarefni 2/6 1.200 m3
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 8. mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. apríl 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Opnun tilboða 9. apríl 2024. Efnisvinnsla í námunni Fossamelar 2. Um er að ræða sprengt berg í efnishaug til vinnslu flokkaðs klæðingarefnis og hálkuvarnarsands.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Þróttur ehf., Akranes | 53.450.000 | 175,3 | 26.030.000 |
Fossvélar ehf., Selfossi | 41.390.000 | 135,8 | 13.970.000 |
Áætlaður verktakakostnaður | 30.483.800 | 100,0 | 3.063.800 |
Steypustöðin námur ehf., Hafnarfirði | 27.420.000 | 89,9 | 0 |