Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu á Vesturlandi 2024, malarslitlag. Um er að ræða vinnslu á malarslitlagsefni í fjórum námum á Vesturlandi. Tvær námur eru í Dalabyggð og tvær í Borgarbyggð.
Náma 1 0/16 | 7.600 m3 |
Náma 2 0/16 | 4.000 m3 |
Náma 3 0/16 | 4.000 m3 |
Náma 4 0/16 | 4.000 m3 |
Verki skal að fullu lokið 15. september 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 26. mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. apríl 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Áætlaður verktakakostnaður | 74.650.000 | 100,0 | 8.850.000 |
Fossvélar ehf., Selfossi | 75.110.000 | 100,6 | 9.310.000 |
Steypustöðin námur ehf., Hafnarfirði | 69.993.000 | 93,8 | 4.193.000 |
Verk og tæki ehf., Selfossi | 65.800.000 | 88,1 | 0 |