Útboðsnúmer 25-055
Álfta­nes, sjóvarn­ir á Hliðs­nesi 2025

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst mars 2025
    • 2Opnun tilboða mars 2025
    • 3Samningum lokið

13. mars 2025Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út verkið „Álftanes, sjóvarnir á Hliðsnesi 2025.” Um er að ræða u.þ.b. 50 m framhald á núverandi sjóvörn á Hliðsnesi ásamt nýjum 300 m hluta austan við núverandi vörn.

Helstu magntölur og verkþættir:
Heildarlengd sjóvarna er um 350 m, flokkað grjót og kjarni samtals um 3.100 m³.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. maí 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með fimmtudaginn 13. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. mars 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.


25. mars 2025Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Urð og grjót ehf., Reykjavík
33.306.110
131,6
0
Áætlaður verktakakostnaður
25.302.575
100,0
8.003.535