Vegagerðin býður hér með út rekstur á áætlunarflugi á Íslandi – sérleyfissamningur, á eftirfarandi
flugleið:
1. Reykjavík – Vestmannaeyjar– Reykjavík
Endurgreiðslu kostnaðar sem af rekstri í áætlunarflugi leiðir að frádregnum tekjum, þ.e. að annast áætlunarflug með farþega og vörur til og frá Vestmannaeyjum, fer samkvæmt nánari skilgreiningu í útboðslýsingu.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og meðföstudeginum 31. maí 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. júlí 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Við opnun var skráð hverjir skiluðu inn tilboði. Eftirtaldir skiluðu inn tilboði.
Myflug hf., Mývatni
Verðtilboð verður opnað 8. júlí nk. kl. 13:00.