Útboðsnúmer 23-091
Áætl­unar­flug á Íslandi – sérleyf­issamn­ingur: Reykja­vík – Horna­fjörður – Reykja­vík 2024-2027

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst mars 2024
    • 2Opnun tilboða apríl 2024
    • 3Samningum lokið

11 mars 2024Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út rekstur á áætlunarflugi á Íslandi – sérleyfissamningur, á eftirfarandi flugleið:

1. Reykjavík – Hornafjörður – Reykjavík

Endurgreiðslu kostnaðar sem af rekstri í áætlunarflugi leiðir að frádregnum tekjum, þ.e. að annast áætlunarflug með farþega og vörur til og frá Hornafirði, fer samkvæmt nánari skilgreiningu í útboðslýsingu.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 11.  mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. apríl 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.


30 apríl 2024Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Icelandair ehf., Reykjavík
3.295.219.200
513,3
1.925.376.960
Mýflug hf., Mývatni
1.596.160.859
248,6
226.318.619
Norlandair, Akureyri
1.369.842.240
213,4
0
Áætlaður verktakakostnaður
641.999.904
100,0
727.842.336