Útboðsnúmer 24-092
Áætl­unar­flug á Íslandi – Reykja­vík – Horna­fjörður – Reykja­vík – Sérleyfi fyrir Vega­gerð­ina

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst mars 2025
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

13. mars 2025Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út rekstur á áætlunarflugi á Íslandi – sérleyfissamningur, á eftirfarandi
flugleið:

(F1) Reykjavík – Hornafjörður – Reykjavík

Samningstími er 3 ár, frá 1. september 2025 til og með 31. ágúst 2028, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum, í eitt ár í senn.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með fimmtudeginum 13. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. apríl 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.