3. janúar 2022
Opnað fyrir umsókn­ir um rann­sóknar­styrki Vega­gerðar­innar

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2022.

Frestur til að skila umsóknum rennur út á miðnætti að kvöldi föstudagsins 28. janúar 2022.

 

Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna. Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2022.

Umsóknir þurfa að berast í seinasta lagi að kvöldi föstudagsins 28. janúar 2022. Nánari upplýsingar má nálgast hér á vef Vegagerðarinnar.

Fyrirspurnir má senda í tölvupósti til Ólafs Sveins Haraldssonar, forstöðumanns rannsóknadeildar, olafur.s.haraldsson(hjá)vegagerdin.is.

Myndin sem fylgir fréttinni er frá rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar árið 2021.