16. ágúst 2024
Fram­kvæmd­ir við brú yfir Fjarðar­hornsá

Framkvæmdir við verkið Vestfjarðavegur (60) um Fjarðarhornsá og Skálmardalsá ganga vel. Fyrstu steypunni var hellt í mót við brúna yfir Fjarðarhornsá í maí en brúarsmíðinni lýkur í desember á þessu ári. Verkið í heild á að klárast í desember 2025.

„Fyrsta steypan hér við Fjarðarhornsá í Kollafirði var í maí en brúin verður vonandi komin í gagnið 1. desember,“ sagði Páll Halldór Björgúlfsson, verkefnastjóri framkvæmdarinnar.

Verkið felst í nýlagningu og endurbyggingu Vestfjarðarvegar á tveimur aðskildum köflum, sitt hvoru megin við fjallveginn Klettsháls eða samtals um tveir kílómetrar. Innifalið í verkinu er bygging tveggja steinsteyptra, eftirspenntra, plötubrúa í tveimur höfum yfir Fjarðarhornsá og yfir Skálmardalsá. Brýrnar tvær verða mjög áþekkar. Báðar 34 metra langar eftirspenntar plötubrýr með 9 m breiðri akbraut og 0,5 m breiðum kantbitum. Slitlag brúna verður úr hástyrkleikasteypu.

Vegagerðin er að mestu nýlagning með tengingu frá núverandi vegstæði að nýjum brúarstæðum og færslu á afleggjurum.

Páll Halldór Björgúlfsson, umsjónarmaður hjá Vegagerðinni.

Páll Halldór Björgúlfsson, umsjónarmaður hjá Vegagerðinni.

Niðurrekstrarstaurar við Skálmardalsá. Framkvæmdum við þá brú mun ljúka á næsta ári. Myndir/Haukur Sigurðsson

Niðurrekstrarstaurar við Skálmardalsá. Framkvæmdum við þá brú mun ljúka á næsta ári. Myndir/Haukur Sigurðsson

„Brýrnar tvær leysa af hólmi tvær einbreiðar brýr sem eru komnar til ára sinna,“ segir Páll en gamla brúin yfir Fjarðarhornsá var byggð árið 1957 og brúin yfir Skálmardalsá árið 1956. Á sumrin aka um 375 bílar á sólarhring um þennan kafla en aðeins um 50 bílar á sólarhring yfir vetrartímann.

Nokkuð er síðan staurar voru reknir niður á fast en brúarflokkar Vegagerðarinnar sáu um það verk. Framkvæmdir frestuðust nokkuð þar sem bjóða þurfti verkið út þrisvar sinnum. Í fyrsta sinn barst ekkert tilboð í verkið, í annað sinn var öllum tilboðum hafnað þar sem þau voru öll langt yfir áætluðum verktakakostnaði. Tilboð voru opnuð í þriðja sinn í desember 2023. Samið var VBF Mjölni ehf. sem átt lægsta tilboðið í verkið. Vestfirskir verktakar ehf. eru undirverktakar og sjá um brúarsmíðina.

Páll segir helstu áskoranir þær að framkvæmdir eru takmarkaðar meðan á stangveiðitímabili stendur, eða frá 20. júní og fram í miðjan september en á því tímabili er jarðvegsvinna í eða við árfarveg ekki heimil. „Við þurftum því að vera komnir upp úr árfarveginum áður en veiðitímabilið byrjaði.“ Önnur áskorun er fjarlægð frá þéttbýli. „Steypan kemur til dæmis alla leið úr Borgarnesi og það er vandasamt að halda steypunni góðri á þessari löngu leið. Það þurfa allar tímasetningar að standast.“

Gert er ráð fyrir að smíði brúarinnar yfir Fjarðarhornsá verði lokið í desember á þessu ári en smíði brúar og vegagerð við Skálmardalsá í desember 2025. Gömlu  brýrnar verða rifnar og fjarlægðar.

VBF Mjölnir ehf. er verktaki en um brúarsmíðina sjá Vestfirskir verktakar ehf.

VBF Mjölnir ehf. er verktaki en um brúarsmíðina sjá Vestfirskir verktakar ehf.

Kort af framkvæmdasvæðinu.

Kort af framkvæmdasvæðinu.

Heildar magntölur fyrir vegagerðina
Bergskering
27.700 m3
Fyllingar
49.900 m3
Útjöfnun gamals vegar
14.000 m2
Fláafleygar
15.700 m3
Ræsalögn
186 m
Styrktarlag flutningur og útlögn
10.000 m3
Burðarlag, flutningur og útlögn
3.700 m3
Klæðing
33.960 m2
Vegrið
480 m
Heildar magntölur fyrir brúargerðina á báðar brýr
Vegrið
188 m
Gröftur
1.600 m3
Stálstaurar
120 stk.
Mótafletir
2.132 m2
Steypustyrktarjárn
100 tonn
Spennt járnalögn
21 tonn
Steypa
1.180 m3

Ljósmyndarinn Haukur Sigurðsson átti leið um framkvæmdasvæðið í vor og tók þá þetta skemmtilega viðtal við Pál Halldór.

Fyrstu steypuframkvæmdir við Fjarðarhornsá fóru fram í maí.

Fyrstu steypuframkvæmdir við Fjarðarhornsá fóru fram í maí.

Brúin verður tvíbreið og 34 metra löng.

Brúin verður tvíbreið og 34 metra löng.

Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 3. tbl. 2024 nr. 731 Áskrift að Framkvæmdafréttum er frí og hægt að gerast áskrifandi með því að senda póst á askrift@vegagerdin.is