Fyrir neðan eru umsóknir sem tengjast hafnarframkvæmdum ásamt fylgiskjölum sem skila þarf inn með þeim.
Umsóknarfresti fyrir næsta tímabil, þ.e. samgönguáætlun 2023 – 2027 lauk 1. maí 2022. Ekki hefur verið auglýst að nýju.
Fyrirspurnir skal senda til fgi(hjá)vegagerdin.is
Tilkynning fyrir árið 2022
Kveðið er á um kostnaðarþátttöku ríkisins í hafnarframkvæmdum í 24. gr. hafnalaga nr. 61/2003 með síðari breytingum. Óskað er eftir umsóknum um öll verkefni sem til greina kemur að ráðast í að mati hafnarstjórnar.
Við gerð áætlunar verður endurskoðuð núverandi samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024 og bætt við hana áætlun um það sem framkvæma skal á árinu 2025-2027. Ef einhverjar breytingar eru áætlaðar m.v. núgildandi samgönguáætlun, þarf að skilgreina það á umsóknarblaði, annars er nóg að senda inn tillögur fyrir árið 2025-2027. Tillaga að nýrri samgönguáætlun verður væntanlega lögð fram á Alþingi næsta vetur.
Framlög úr ríkissjóði til hafnargerðarverkefna er heimilt að veita hafnasjóðum/ höfnum sem reknar eru skv. 1. og 2. tölulið 8. hafnalaga nr. 61/2003. Hafnargerðarverkefni sem heimilt er að styrkja eru talin upp í 24. gr. hafnalaganna og nánar skilgreind í IV kafla reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004. Hvort hafnarsjóðir falli undir a), b) eða c) staflið 24. greinar ræðst af viðmiðum sem þar eru tilgreind um tekjur hafnarsjóðs, verðmæti landaðs afla og vöruflutningum sem um höfnina fara.
Lýsa skal hverju einstöku verkefni og gefa upp helstu kennistærðir. Leggja skal fram viðskiptaáætlun fyrir viðkomandi verk þar sem fram koma áætlaðar tekjur og annar ávinningur af framkvæmd auk rekstrarkostnaðar fyrir hafnarsjóð og sveitarfélagið í heild. Þar skal einnig lýsa áætlun heimamanna um fjármögnun heimahluta og gefa upplýsingar sem sýna fram á að hafnarsjóðurinn hafi nýtt alla kosti sína til tekjuöflunar svo að ríkisframlag raski ekki samkeppni við aðrar hafnir.
Staðfesting eldri verkefna í hafnargerð:
Staðfesta þarf eldri verkefni sem eru á gildandi samgönguáætlun og einnig verkefni sem kunna að vera ólokin svo fremi að þau séu styrkhæf sbr. hér að ofan. Ef verkefnin eru ekki staðfest verður litið svo á að viðkomandi hafnarsjóður sé hættur við framkvæmd þeirra.
Umsókn um framlag til frumrannsókna:
Gera skal grein fyrir óskum um öldufarsreikninga, líkantilraunir og aðrar frumrannsóknir vegna hafnargerðar svo að hægt sé að meta þörf og ávinning af umbeðnum frumrannsóknum.
Umsókn um framlag til sjóvarna:
Gefinn er kostur á að sækja um framlag til sjóvarna vegna flóðahættu eða landbrots af völdum ágangs sjávar. Byggð svæði og svæði þar sem til staðar eru mannvirki eða menningarminjar njóta forgangs við gerð sjóvarna. Vakin er athygli á að í 5. gr. sjóvarnalaga nr. 28/1997 er kveðið á um að landsvæði sem verja á, svo og varnarmannvirkin sjálf, hafi fengið meðferð samkvæmt skipulagslögum. Allar ábendingar og óskir sem berast frá sveitarfélögum um staði þar sem mannvirki eða önnur verðmæti eru í hættu af völdum sjávarflóða og landbrots verða skoðaðar, mat lagt á framkvæmdir og kostnað og verkefnum síðan forgangsraðað. Eyðublöðin má sjá hér fyrir neðan.
Upplýsingum um vöruflutninga og heimaflota ber að skila til Vegagerðarinnar burt séð frá því hvort sótt er um framlag til framkvæmda eða ekki, samanber ákvæði í 9. grein hafnalaga.
Spurningar og fyrirspurnir má senda á netfangið fgi@vegagerdin.is eða í síma 522-1425.