PDF · desember 2005
Umferðaró­höpp og meiðsli eldri ökumanna

Gögn úr slysaskrá Umferðarstofu voru rannsökuð og fyrst var fundin skipting ökumanna í þrjá aldurshópa. Í þessari rannsókn voru ungir ökumenn skilgreindir sem 17-24 ára, og síðan var leitað að mörkunum á milli miðhópsins og eldri ökumanna. Oft eru eldri ökumenn skilgreindir sem ökumenn 65 ára og eldri. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að slysatíðni eldri ökumanna byrjar að vaxa við þann aldur. Því var byrjað við 65 ára aldur en það kom í ljós að ekki finnst marktækur munur á meiðslum eldri ökumanna
fyrr en við 68 ára aldur og ekki í öllum meiðslaflokkum uns þeir eru skilgreindir sem 72 ára og eldri. Gögnin voru þá tekin og flokkuð í þessa þrjá aldurshópa (17-24, 25-71, 72 og eldri) og hlutfallsdreifing ökumanna innan hvers aldurshóps var könnuð fyrir alla helstu þætti sem skrásettir eru í slysaskránni. Það kemur í ljós að hlutfall eldri kvenna er mun lægra en eldri karla í umferðaróhöppum. Einnig sést að fjöldi óhappa eldri ökumanna fer ört vaxandi á rannsóknartímabilinu 1999-2004, og örar vaxandi en umferðaróhöpp yngri ökumanna. Þetta er hugsanlega vegna hlutfallslega aukins fjölda eldri ökumanna og/eða aukins aksturs eldri ökumanna. Mestu meiðsli í slysum eldri ökumanna eru einnig hlutfallslega oftar dauðsfall en hjá öðrum ökumönnum.

Höfundur

Guðmundur Freyr Úlfarsson

Skrá

umferdarohopp_eldri_okumanna-1.pdf

Sækja skrá