Vegagerðin býður hér með út smíði tveggja steinsteyptra eftirspenntra 34 m plötubrúa yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá, ásamt vegagerð við hvora brú fyrir sig, samtals um 1,8 km. Brýrnar eru beggja vegna við Klettsháls.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. desember 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 26. maí 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. júní 2023.
Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð
Heildar magntölur fyrir vegagerðina | |
Bergskering í námu | 29.200 m3 |
Fyllingar | 45.640 m3 |
Útjöfnun gamals vegar | 14.000 m3 |
Fláafleygar | 15.700 m3 |
Ræsalögn | 186 m |
Styrktarlag | 15.700 m3 |
Burðarlag | 3.700 m3 |
Klæðing | 32.900 m2 |
Vegrið | 480 m |
Heildar magntölur fyrir brúargerðina á báðar brýr | |
Vegrið | 188 m |
Gröftur | 1.600 m3 |
Stálstaurar, skurður | 166 stk. |
Mótafletir | 2.100 m2 |
Steypustyrktarjárn | 95 tonn |
Spennt járnalögn | 16,5 tonn |
Steypa | 1.180 m3 |
Opnun tilboða 20. júní 2023. Smíði tveggja steinsteyptra eftirspenntra 34 m plötubrúa yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá, ásamt vegagerð við hvora brú fyrir sig, samtals um 1,8 km. Brýrnar eru beggja vegna við Klettsháls.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. desember 2024.