Útboðsnúmer 23-086
Um Ölfusá, alút­boð

1. mars 2023Útboðsauglýsing

Opnun tilboða 18. apríl 2023. Vegagerðin óskaði eftir þátttakendum í samkeppnisútboði byggingar nýrrar brúar á Ölfusá ásamt aðliggjandi vegum, vegamótum, brúm og undirgöngum. Um er að ræða samkeppnisútboð á grundvelli laga um opinber innkaup þar sem beitt verður hæfismiðuðu vali og þeim fyrirtækjum boðið til þátttöku sem metin verð hæf á grundvelli útboðsauglýsingar.

Nöfn bjóðenda í útboðinu:

 

HOCHTIEF Infrastructure GmbH, Essen, Þýskalandi
IHI Infrastructure Systems Co.,Ltd, Tokyo, Japan
ISTAK hf – Per Aarsleff A/S – Freyssinet int., fyrirhönd óstofnaðs félags, Reykjavík
Puentes y Calzadas Infraestructuras, S.L.U., Spáni
ÞG verktakar ehf., Reykjavík

Vegagerðin óskar eftir þátttakendum í samkeppnisútboð vegna byggingar nýrrar brúar á Ölfusá ásamt aðliggjandi vegum, vegamótum, brúm og undirgöngum. Um er að ræða samkeppnisútboð á grundvelli laga um opinber innkaup þar sem beitt verður hæfismiðuðu vali og þeim fyrirtækjum boðið til þátttöku sem metin verða hæf á grundvelli útboðsauglýsingar. Vonast er til að samningar náist á þessu ári. Stefnt er á að framkvæmdum við byggingu Ölfusárbrúar ljúki árið 2026. 

Verkið „Hringvegur (1) um Ölfusá, alútboð“ var auglýst í rafræna útboðskerfinu TendSign föstudaginn 3. mars 2023. Umsóknarfrestur er til klukkan 14:00 miðvikudaginn 5. apríl. Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Verkið snýst um færslu Hringvegar (1) út fyrir þéttbýlið á Selfossi. Meðal helstu verkþátta eru nýbygging 3,7 km Hringvegar, bygging nýrrar 330 m langrar stagbrúar á Ölfusá og um 1 km af öðrum tveggja akreina vegum. Gera þarf ný vegamót við Hringveg austan Selfoss, undirgöng undir Hringveg fyrir gangandi, hjólandi og hestamenn ásamt undirgöngum fyrir bíla og gangandi. Einnig er gert ráð fyrir lögnum veitufyrirtækja.

Markmiðið með framkvæmdunum er að auka umferðarrýmd, aðskilja akstursstefnur og bæta umferðaröryggi.

Brúin verður 330 metra löng stagbrú með 60 metra háum turni á Efri Laugardælaeyju. Brúargólf verður 19 m breitt og er gert ráð fyrir 2+1 vegi með aðskildum aksturstefnum ásamt göngu- og hjólaleið. Einnig er gert ráð fyrir göngu- og hjólaleið undir brúna á báðum árbökkum.

Gert er ráð fyrir steyptum endastöplum, brúargólfi með stálbitum og steyptu gólfi og turni úr stáli. Við forhönnun brúarinnar var miðað við aðstæður á svæðinu þar sem búast má við bæði jarðskjálftum og flóðum. Í brúnni er gert ráð fyrir jarðskjálftaeinangrun og forspenntum, bergfestum í undirstöðum turnsins.

Helsta breytingin sem verður við þessa framkvæmd er að Hringvegur (1) styttist um 1,2 km og ferðatími styttist að lágmarki um fjórar til fimm mínútur. Einnig mun greiðast úr þeim umferðarteppum sem oft hafa skapast við gömlu Ölfusárbrúna.

Framkvæmdin fer um tvö sveitarfélög, Flóahrepp og sveitarfélagið Árborg. Vegagerðin hefur sótt um framkvæmdaleyfi til sveitarfélaganna beggja.

Áætluð umferð um brúna við opnun er um fjögur til fimm þúsund ökutæki á sólarhring. Þá verður umferð þyngri ökutækja ekki leyfð á gömlu brúnni þegar sú nýja hefur verið tekin í notkun.

Um er að ræða samkeppnisútboð á grundvelli laga um opinber innkaup þar sem beitt verður hæfismiðuðu vali og þeim fyrirtækjum boðið til þátttöku sem metin verða hæf á grundvelli útboðsauglýsingar. Vonast er til að samningar náist um framkvæmdina fyrir lok þessa árs. Stefnt er á að framkvæmdum við byggingu Ölfusárbrúar ljúki árið 2026.


12. mars 2024Opnun tilboða

Bjóðandi
ÞG verktakar, Reykjavík