Útboðsnúmer Vg2021-121
Þorláks­höfn – Leng­ing Suður­varargarðs, færsla Suður­varar­bryggju (EES)

8 september 2021Útboðsauglýsing

Hafnarsjóður Þorlákshafnar hafnar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Verkefnið felst í lengingu Suðurvarargarðs um 250 m, rifi harðviðartunnu á garðsenda og undirbúningi á færslu og snúningi Suðurvararbryggju með byggingu brimvarnargarðs og niðurbroti Suðurvararbryggju og dýpkun bryggjustæðis niður í kóta -9,0 m.

Helstu magntölur
Kjarnafyllingar í garða
250000 m3
Grjót raðað í garða
 195.000 m3
Upptaka og endurröðun grjóts 
 58.000 m3
Dýpkun       
10.000 m3
Landfylling 
13.000 m3
Bryggjurif    
200 m

Verkinu er skipt upp í 6 áfanga sem er nánar lýst í útboðslýsingu og skal verkefninu að fullu lokið  1.desember 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með sunnudeginum 12. september 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. október 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.


19 október 2021Opnun tilboða

Opnun tilboða 19. októver 2021. Hafnarsjóður Þorlákshafnar óskaði eftir tilboðum í ofangreint verk. Verkefnið felst í lengingu Suðurvarargarðs um 250 m, rifi harðviðartunnu á garðsenda og undirbúningi á færslu og snúningi Suðurvararbryggju með byggingu brimvarnargarðs og niðurbroti Suðurvararbryggju og dýpkun bryggjustæðis niður í kóta -9,0 m.

Verkinu er skipt upp í 6 áfanga sem er nánar lýst í útboðslýsingu og skal verkefninu að fullu lokið  1.desember 2023.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Suðurverk hf., Kópavogur
2.355.486.000
102,7
0
Áætlaður verktakakostnaður
2.294.545.000
100,0
60.941.000

10 desember 2021Samningum lokið

Suðurverk hf.,Kópavogur
kt. 5208850219