Útboðsnúmer 19-129
Bisk­upstungna­braut – Hvera­gerði, 2. áfangi, Bisk­upstungna­braut – Gljúfur­holtsá (EES útboð)

31 janúar 2020Útboðsauglýsing

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í annan áfanga í breikkun Hringvegar milli Biskupstungnabrautar og Hveragerðis.

Lengd útboðskaflans er 7,1 km. Um er að ræða nýbyggingu Hringvegar að hluta og endurgerð núverandi Hringvegar að hluta, gerð nýrra vegamóta við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri, gerð hringtorgs við Biskupstungnabraut, nýbyggingu Ölfusvegar, breytingu Þórustaðavegar og Biskupstungnabrautar sem og gerð heimreiða. Hluti verksins er bygging fimm steyptra brúa og undirganga ásamt tveggja reiðganga úr stáli.

Einnig eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.

Verkinu skal að fullu lokið 29. september 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum  31. janúar 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. mars 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.

Helstu magntölur
Vegagerð, helstu magntölur
Magn
Eining
Ídráttarrör
20.000
m
Fyllingarefni úr skeringu, umframefni úr fergingu 
204.900
m3
Fylllingarefni úr námu 
367.200
m3
Fláafleygar, efni úr skeringum 
34.500
m3
Ónothæfu efni jafnað á losunarstað 
79.100
m3
Stálræsi
1.500
m
Ofanvatnsræsi
670
m
Styrktarlag
157.700
m3
Burðarlag, óbundið 
46.300
m3
Kaldblandað malbik
128.000
m2
Tvöföld klæðing 
51.200
m2
Malbik
263.000
m2
Gróffræsun
42.500
m2
Vegrið
10.100
m
Götulýsing, skurður, strengur, lagning 
8.000
m
Götulýsing, uppsetning ljósastaura 
170
stk.
Yfirborðsmerkingar, línur 
53.600
m
Brýr og undirgöng, helstu magntölur 
Magn
Eining
Brúarvegrið
180
m
Gröftur
19.300
m3
Fylling
14.800
m3
Mótafletir
8.200
m2
Járnalögn
536.400
kg
Kaplar, 12 x ø16 (eftirspennt járnalögn) 
14.800
kg
Steypa
3.200
m3
Vatnsvarnarlag undir malbik 
1.900 
m2
Reiðgöng, helstu magntölur
Magn
Eining
Stálplöturæsi, D = 4-5 m 
76
m
Gröftur
4.300
m3
Fylling
1.500
m3
Jarðvegsdúkur
600
m2
Veitulagnir
Magn
Eining
Gröftur, lagnaskurðir 
11.100
m3
Fylling, sandur 
5.000
m3
Ídráttarrör
2.700
m
Hitaveitulagnir
2.100
m
Kaldavatnslagnir
3.700
m
Fjarskiptalagnir (rör) 
13.400
m

3 mars 2020Opnun tilboða

Tilboð opnuð 3. mars 2020. Annar áfanga í breikkun Hringvegar milli Biskupstungnabrautar og Hveragerðis.

Lengd útboðskaflans er 7,1 km. Um er að ræða nýbyggingu Hringvegar að hluta og endurgerð núverandi Hringvegar að hluta, gerð nýrra vegamóta við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri, gerð hringtorgs við Biskupstungnabraut, nýbyggingu Ölfusvegar, breytingu Þórustaðavegar og Biskupstungnabrautar sem og gerð heimreiða. Hluti verksins er bygging fimm steyptra brúa og undirganga ásamt tveggja reiðganga úr stáli.

Einnig eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Ístak hf., Mosfellsbær
5.869.154.444
111,9
799.968.158
Suðurverk hf. og Loftorka Reykjavík ehf.
5.712.025.923
108,9
642.839.637
Áætlaður verktakakostnaður
5.245.000.000
100,0
175.813.714
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík
5.069.186.286
96,6
0

8 apríl 2020Samningum lokið

Íslenskir aðalverktakar hf.,Reykjavík
kt. 6601692379