16. september 2024
Frítt í lands­byggðar­strætó á bíllausa daginn

Vegagerðin tekur virkan þátt í Evrópsku samgönguvikunni, meðal annars með því að hafa frítt í landsbyggðarstrætó á bíllausa daginn, sunnudaginn 22. september. 

Evrópska samgönguvikarn er haldin 16. til 22. september.

Evrópska samgönguvikarn er haldin 16. til 22. september.

Borgir og bæir á Íslandi hafa tekið þátt í Evrópsku samgönguvikunni frá árinu 2002. Samgönguvikan er samstillt átak sveitarfélaga í Evrópu sem er ætlað að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Umhverfis, – orku- og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með átakinu á Íslandi.  Evrópsk aSamgönguvikan er haldin 16. – 22. september ár hvert. Markmið hennar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. 

Þema vikunnar í ár er Almannarými – virkir ferðamátar 

Vegagerðin tekur virkan þátt í samgönguvikunni meðal annars með því að hafa frítt í landsbyggðarstrætó á bíllausa daginn, sunnudaginn 22. september.  

Kynntu þér allt um samgönguvikuna á Facebook síðu samgönguviku  

Leiðarkerfi landsbyggðarstrætós en frítt verður í strætó á bíllausa daginn 22. september.

Leiðarkerfi landsbyggðarstrætós en frítt verður í strætó á bíllausa daginn 22. september.

Fjölbreyttir viðburðir verða á dagskrá í samgönguvikunni: 

  1. september: Setning og hjólasýning
  • Hjólasýning Reiðhjólabænda í samstarfi við Reykjavíkurborg verður opnuð í Tjarnarsal Ráðhússins 16. september kl. 16 og verður hún opin alla daga Samgönguvikuna. Gestir geta lagt reiðhjólum sínum við innganga hússins eða í bílakjallara undir húsinu. 
  1. september: Auðlindahringir, bíó og málþing
  • Auðlindahringir er viðburðaröð hjá Elliðaárstöð þar sem auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins. Rafstöðvarvegi kl. 17. 
  • Reiðhjólabændur og Bíó paradís sýna heimildamyndina Chasing The Sun. 
  • Aðförin í öndvegi. Elliðaárstöð. Orka náttúrunnar og Veitur standa fyrir málþingi í hádeginu á Bístró við Elliðaárstöð þar sem umferð hjólandi og gangandi er einmitt í öndvegi. Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi. 
  1. september: Nýr göngustígur og PubQuiz
  • Opnun á nýjum göngu- og hjólastíg við Suðurhlíðar í samstarfi Reykjavíkurborgar, Vegagerðar og Betri samgangna. 
  • Samgöngu PubQuiz á SnorraBar með Samtökum um bíllausan lífsstíl kl. 11. 
  1. september: Umferðarþing
  • Umferðarþing – saman í liði. Samgöngustofa heldur Umferðarþing kl. 9:00-15:30 í Gamla Bíói, Ingólfsstræti 2a í Reykjavík. Þema: Ólíkir vegfarendahópar. 
  1. september: Reykvíkingar og Seltirningar hjóla saman
  • Samhjól. Reykjavíkurborg og Seltjarnarnes leiða hesta sína saman og bjóða upp á hjólaferð fjölskyldunnar. Hist verður við kl. 11 við nýjan útsýnispall við JL húsið. Sex kílómetra Gróttuhringur verður hjólaður og þátttakendum boðið í sund, kaffi, djús og kleinur í lok ferðar. 
  1. september: Bíllausi dagurinn
  • Bíllausi dagurinn. Frítt verður í landsbyggðarstrætó og í strætó á höfuðborgarsvæðinu. 
  • Lokun á Garðsbraut á Húsavík fyrir bílaumferð. Fyrirlestur um öryggi barna í gatnahönnun. Norðurþing.