PDF · mars 2022
Grím­svatna­hlaup, vatns­geym­ir, upphaf og rennsli (greinar­gerð um verk­efnið 2021)

Hér er gerð grein verkum sem unnið var að með stuðningi Rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar í verkefninu: Grímsvatnahlaup: Vatnsgeymir, upphaf og rennsli.
Grímsvötn eru í lægð Grímsvatnaöskjunnar í miðjum Vatnajökli (1. mynd). Þarna er stærsta jarðhitasvæði landsins og auk bræðsluvatns af jökulyfirborði safnast þar vatn sem bráðnar vegna jarðhita við jökulbotninn. Ofan á Grímsvötnum er íshella, um 300 m þykk að jafnaði, sem flýtur upp með aukinni vatnssöfnun. Að því kemur að ísstíflan sem heldur að vatninu til austurs gefur sig, göng myndast í ísinn við jökulbotn og vatn hleypur við jökulbotn frá Grímsvötnum til Skeiðarársands.

Helstu niðurstöður vinnu á árinu 2021 við könnun á aðstæðum í Grímsvötnum eru kynntar hér m.a. vatnshæð, flatarmál og rúmmál Grímsvatna, lega vatnsrása, mat á þykkt íshellu, vöktun ísstíflu, mat á líklegu hámarksrennsli í hlaupum, rennsli frá Grímsvötnum ásamt mati á núverandi stöðu í Grímsvötnum og líklegri þróun þar. Einnig afkomu ísaviðs Grímsvatna, lögun þess, ísskrið og afrennsli leysingavatns til þeirra og jökulhlaup í nóv.-des. 2021.

Forsíða skýrslunnar samvinna um rannsóknir í grímsvötnum
Höfundur

Finnur Pálsson og Eyjólfur Magnússon

Skrá

nr_1800_025_grimsvotn-vatnsgeymir-upphaf-og-rennsli-2021-1.pdf

Sækja skrá