Útboðsnúmer 25-011
Yfir­lagn­ir Austur­svæði 2025, blett­anir með klæð­ingu

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst mars 2025
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

26. mars 2025Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir með blettunum á vegum á Austursvæði árið 2025.

Helstu magntölur eru áætlaðar ár hvert:
Klæðing, blettun með þjálbik
60.000 m2
Klæðing, flutningur steinefnis
23.000 m3 * km
Klæðing, flutningur bindi- og viðloðunarefnis
9.000 m3 * km

Verkinu skal lokið eigi síðar en 20. ágúst 2026. Gildistími samnings er eitt ár. Heimild er til framlengingar samnings um eitt ár með samþykki
beggja aðila.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með miðvikudeginum 26. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. apríl 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.