Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Vestursvæði árið 2023.
Verki skal að fullu lokið 1. september.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 14. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. mars 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Helstu magntölur | |
Hjólfarafylling með klæðingu | 18.000 m2 |
Yfirlögn með einföldu lagi klæðingar, þjálbik | 380.000 m2 |
Yfirlögn með einföldu lagi klæðingar, bikþeyta | 20.000 m2 |
Yfirlögn með kílingu | 60.000 m2 |
Klæðing yfirsprautun | 18.000 m2 |
Flutningur steinefna | 100.000 m3x km |
Flutningur bindi- og viðloðunarefna | 90.000 m3x km |
Opnun tilboða 28. mars 2023. Yfirlagnir með klæðingu á Vestursvæði árið 2023.
Verki skal að fullu lokið 1. september.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Áætlaður verktakakostnaður | 149.543.580 | 100,0 | 5.307.180 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 144.236.400 | 96,5 | 0 |