Útboðsnúmer 25-041
Vetrar­þjón­usta 2025-2028, Rangár­valla­sýsla og Flói

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst mars 2025
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

7. mars 2025Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, í Rangárvallasýslu og Flóa.

Helstu magntölur fyrir hvert tímabil eru:
Akstur vörubifreiða á þjónustuleiðum er áætlaður 43.000 km á ári

Gildistími samnings er þrjú ár, þ.e. veturna 2025-2026, 2026-2027 og 2027-2028. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn,

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með föstudeginum 7. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. apríl 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.