Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, á Suðursvæði, um Kjalarnes og Mosfellsheiði. Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frátöku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, eitt ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 74.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2027.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 2. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. mars 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Opnun tilboða 5. mars 2024. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, á Suðursvæði, um Kjalarnes og Mosfellsheiði. Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frátöku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, eitt ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 74.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2027.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Grafa og grjót ehf., Hafnarfirði | 614.097.000 | 104,8 | 145.353.000 |
Áætlaður verktakakostnaður | 585.984.000 | 100,0 | 117.240.000 |
Bjartey ehf., Reykjavík | 478.386.957 | 81,6 | 9.642.957 |
Óskatak ehf., Kópavogi | 468.744.000 | 80,0 | 0 |